Laun Birnu lækka: Fær núna 4,2 milljónir á mánuði – fékk 4 milljónir í kaupauka

Birna Einarsdóttir stýrir Íslandsbanka sem er í eigu ríkisins. Laun hennar eru 4,2 milljónir króna á mánuði eða 50.9 milljónir á ári. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins sem vitnar í ársreikning bankans sem birtur var í dag. Þar segir að til viðbótar bætist við 11,9 milljónir í mótframlag í lífeyrissjóð.

Laun Birnu lækka um 12,6 milljónir á milli áranna 2018 og 2019 en árið áður voru laun hennar 63,5 milljónir eða 5,3 milljónir á mánuði.

Samkvæmt ársreikningi fékk Birna kaupauka uppá 3,9 milljónir fyrir árið 2014. Í fyrra fékk hún í kaupauka fyrir árið 2015 4,1 milljón króna. Á þessu ári verður kaupauki fyrir 2016 gert upp og er það síðasti kaupaukinn en kaupaukakerfið hefur ekki verið virkt frá árinu 2017.

Laun Birnu hafa oft verið á milli tannanna á fólki en laun hennar eru nú á svipuðum slóðum og laun Lilju Bjarkar Einarsdóttur sem stýrir Landsbankanum. Lilja er með 3,8 milljónir króna í laun en í Fréttablaðinu á síðasta ári kom fram að laun bankastjóra Landsbankans hefðu hækkað úr tveimur milljónum í 3,8 á aðeins tveimur árum.  Báðir bankarnir eru í eigu ríkisins.

Katrín Jakobsdóttir gagnrýndi harðlega árið 2019 launahækkanir Landsbankans. Þá sagði Katrín

„Mér finnst þetta óskiljanleg ákvörðun hjá stjórn Landsbankans sem fékk tilmæli árið 2017 frá þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra um að gæta hófs í sinni starfskjarastefnu. Hér sjáum við 82% hækkun á launum þessa bankastjóra ríkisbankans frá árinu 2017. Sem er auðvitað úr takti við alla almenna launaþróun í samfélaginu. Sagði Katrín að taka þyrfti kjarastefnuna til endurskoðunar. Katrín sagði einnig:

„Ef stjórn Landsbankans kýs að túlka hana svona þá þarf kannski að fastbinda hana miklu betur.“

Fátt hefur gerst í þeim málum hjá Katrínu en laun Lilju lækkuðu örlítið á milli ára samkvæmt ársreikningi bankans. Laun Lilju voru 43,6 milljónir í fyrra samanborið við 44 milljónir árið áður.“