Laug til um skotárás og sprengju

Örygg­is­vörður­inn við há­skól­ann í Ósló sem til­kynnti um að hafa verið skot­inn af tveim­ur mönn­um í fyrrinótt laug að lög­reglu. Í ljós hefur komið að það var hann sjálf­ur sem skaut og kom fyr­ir eft­ir­lík­ingu að sprengju vip skólann.

Þetta staðfestir Grete Lien Metlid, lög­reglu­stjóri í Ósló á blaðamanna­fundi lög­regl­unn­ar í morgun, en að hennarsögn breytti ör­ygg­is­vörður­inn frá­sögn sinni af atburði næt­ur­inn­ar í gær­kvöldi og hef­ur hann nú verið kærður fyr­ir mein­særi. 

Örygg­is­vörður­inn hafði sam­band við lög­regl­una aðfar­arnótt miðviku­dags og sagðist hafa orðið fyr­ir skoti er hann var við störf á há­skóla­svæðinu. Sagði hann að tveir menn hefðu verið að verki og hefði ann­ar þeirra skotið hann með litl­um riffli og þeir síðan forðað sér á hlaup­um. Örygg­is­vörður­inn var í skot­heldu vesti og slasaðist því aðeins lít­il­lega þar sem skot hæfði hann í brjóstið.

Lög­regl­an girti af stórt svæði við há­skól­ann og fannst hlut­ur sem jafn­vel var talið að væri sprengja. Síðar kom í ljós að um eft­ir­lík­ingu var að ræða og taldi lög­regl­an að til­ræðis­menn­irn­ir hafi ætlað að vekja ótta.