Laufey Ebba sem heldur úti vinsælum aðgangi á samfélagsmiðlinum TikTok birti í dag myndbönd þar sem hún gerir grín að Bjarna Bendiktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Greint var frá því í morgun að Bjarni hafi verið í hátt í fimmtíu manna teiti í gærkvöldi sem lögregla stöðvaði. Ýmsir hafa kallað eftir afsögn hans í kjölfarið.
Einhverjir voru ósáttir með myndböndin en einhver notandi sem gekk undir nafninu "burstatennur". Sá sem er á bakvið aðganginn skrifaði athugasemdir við einhver myndbönd Laufeyjar og segir meðal annars:
„ef þið höfðuð ekki seð að bjarni var þarna hefðu þið aldrei pælt i þessu, en þvi að það kom frett að hann hafi verið þarna þa tjullast allir“ og: „en perfect tækifæri að trasha bb, fyrir að fara í asmundarsal þar sem voru 25 manns. en samt ma vera a sama stað i bænum þar sem eru 3 þusund manns“.
Laufey vildi þá vita hver væri á bak við aðganginn "burstatennur" en þegar hann er opnaður kemur strax upp nafnið Thora Baldvinsdottir, en eiginkona Bjarna heitir eimitt Þóra Baldvinsdóttir.
Laufey birti þetta svo á Twitter og er handviss um að kona Bjarna hafi verið þarna á ferð á nýstofnuðum fölskum aðgangi.
„Ef þú skráir þig [á TikTok] með gmail geturðu ráðið notendanafni en gmail nafnið þitt kemur sjalfkrafa efst. Hún gleymdi að breyta því,“ segir Laufey. Hún segist ekki búast við því að Þóra muni viðurkenna það sjálf að hún hafi verið þarna á ferð en stuttu eftir að Laufey vakti athygli á þessu á Twitter þá eyddi sú sem gengur að minnsta kosti undir nafninu "Thora Baldvinsdottir" á gmai aðgangi sínum "burstatennur" af TikTok.
Vibes að kona BB hafi búið til fake aðgang a tiktok og ekki vitað að þú þarft að breyta nafninu efst, bara til að kommenta á Tiktok hjá mér. Það er 10/10 vandræðalegt
— Laufey Ebba (@Laufeyebba) December 24, 2020
Ef þú skráir þig með gmail geturðu ráðið notendanafni en gmail nafnið þitt kemur sjalfkrafa efst. Hún gleymdi að breyta því. pic.twitter.com/SS2gmmqfhY
— Laufey Ebba (@Laufeyebba) December 24, 2020