Það líður varla sá dagur að ekki sé ráðist í ritstjórnargreinum Morgunblaðsins af offorsi á stjórnendur Reykjavíkurborgar. Í Staksteinum og leiðurum er hamast á borgarstjórninni, og á sama tíma keppast fulltrúar minnihlutans, með Miðflokkinn fremstan, við að gera allt tortryggilegt sem borgin aðhefst og gjarnan með dylgjum um svik, lögleysu og spillingu.
Þetta hefur gengið svo langt síðasta árið að það er jafnvel eins og stuðningsfólk meirihlutans sé sumpart farið að trúa því að í borginni sé allt í kaldakoli, ef marka má skoðanakannanir. Nýjasta dæmið um þennan vanstillta óhróður er pistill á baksíðu síðasta Helgarfréttablaðs þar sem sagt er að borgarstjórninni sé sama um þótt skólabörn veikist af myglusveppaeitrun.
Nánar á
https://www.visir.is/g/2019190329165