Framsóknarflokkurinn hefur gripið til þess ráðs að reyna að selja höfuðstöðvar sínar á Hverfisgötu 33. Húsið var áður í eigu Olíufélagsins hf. (Esso), sem breyttist í Ker en það varð síðar að N1.
Árið 2016 voru hluthafar í Skúlagarði á fjórða hundrað. Fréttablaðið hefur vakið athygli á því að stór hluti skráðra eigenda eru látnir. Þar af voru fimm af níu stærstu hluthöfunum látnir. Einnig voru dæmi um að einstaklingur sem lést árið 1993 væri enn skráður fyrir hlut í félaginu.
Þá segir á vef Eyjunnar að rekstrarstaða Framsóknarflokksins fyrir 2017 hafi verið slæm. Eigið fé var neikvætt um tæpar 60 milljónir og tapaði flokkurinn 39 milljónum króna. Skuldir flokksins eru 242 milljónum króna.
Helgi Haukur Hauksson, framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins segir í samtali við RÚV að ástæðan fyrir sölunni séu breyttar rekstrarforsendur, og fáir starfa nú í húsinu sem sé um 465 fermetrar að stærð. Helgi þvertekur fyrir að húsið hafi verið sett á sölu vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Segir hann skýringuna vera að nú sé flokkurinn að aðlaga sig að breyttum aðstæðum.