Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda skrifaði undir samning félagsins við spænsku skipasmíðastöðina Astilleros Armon Gijon í borgini Navía á héraðinu Asturias á Norður-Spáni.
Áformað er að kjölur togarans verði lagður í september nk. og að smíðatími verði tvö ár. Togarinn verður því afhendur um mitt ár 2019. Togarinn verður þá sá stærsti og um leið einn fullkomnasti flakafrystitogari sem gerður verður út við norðanvert Atlantshaf.
Togarinn verður um 5.000 brúttótonn að stærð og er hann hannaður í Noregi. Tekið er mið við hönnun af orkusparnaði bæði við veiðar og á siglingu. Framleiðslugetan um borð er áætluð rúm eitt hundrað tonn á sólarhring. Lestar togarans rúma eitt þúsund tonn af unnum afurðum. Samningsverð er um 4,9 milljarðar króna.
rtá
Nánar www.hbgrandi.is