Eins og kunnugt er vann Íslendingu nýverið rúmlega 45 milljónir á Lottómiðann sinn í fimmfalda pottinum, nánar tiltekið í lok nóvember.
Sá heppni er tæplega fimmtugur karlmaður sem býr í Reykjavík og keypti hann miðann sinn í Olís við Sæbraut í Reykjavík.
Vegna lasleika komst maðurinn ekki fyrr en rúmlega viku eftir útdrátt til að láta yfirfara miðann.
Hann var ennþá í vægu sjokki þegar hann heimsótti okkur hjá Getspá og varla farinn að trúa þessari heppni. En alsæll var hann og væntanlega verður brosað út að eyrum við jólagjafainnkaupin á þessu heimili,“ segir Inga Hild Sigurðardóttir, markaðsstjóri hjá Íslenskri getspá.