Las upp úr eigin bók í stað þingstarfa

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, upplýsir á eigin fésbókarsíðu að hann hafi fengið frí frá þingstörfum í vikunni, m.a. til að hitta fólk og kynna bók sína í Eyjum.

Björn Valur Gíslason, varaþingmaður VG, gagnrýnir þetta og skrifar:

„Fékk hann frí frá þingstörfum á mesta annatíma þingsins til að selja bókina sína? Hver gaf honum frí? Var þetta launalaust frí? Hvar sækja menn um frí frá þingstörfum? Hverjum er þingmaðurinn þakklátur fyrir fríið sem hann fékk? Hvaða rugl er þetta eiginlega ...?“

Í færslu Ásmundar frá 18. desember segir: „Fékk frídag í þinginu vegna löngu ákveðinnar heimsóknar til Eyja og er þakklátur fyrir mann skilning. Heimsótti starfsmenn á Keflavíkurflugvelli í jóla-morgunkaffi og talaði við þá um lífið og tilveruna. Um hvað sagan er mikilvæg og lagði til að saga hersins og saskipti íbúanna verði skráð. Er núna um borð í Herjólfi og mun milli kl. 16.00-18.00 undirrita bókina mína í Eymundsson í Eyjum og kl. 18.00 er mér boðið í hóf hjá Skipalyftunni í Eyjum.

Gott að koma Heim og njóta vináttu og friðar eitt kvöld.“

Friðurinn sem Ásmundur nefnir gæti þó orðið dýrkeyptur samanber gagnrýni Björns Vals. Hafa fleiri brugðist við „fríi“ Ásmundar á samfélagsmiðlum og bent á að þingmönnum beri að vinna fyrir almenning, þeim beri að taka þau trúnaðarstörf alvarlega og undir það falli að eigin frítími þeirra, ekki vinnudagar, skuli notaður undir bókarkynningar og annað sem þingmenn hafi persónulegan hag af.

 \"Reginhneyksli\", segir Hrönn Geirsdóttir. Aðrir fara fram á afsögn þingmannsins.

Hringbraut hefur sent Ásmundi fyrirspurn vegna málsins.