Larús welding í 5 ára fangelsi

Lárus Welding var í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir brot í Stím-málinu. Jóhannes Baldursson hlaut tveggja ára fangelsisdóm og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson fékk átján mánaða dóm.
 
Lárus var dæmdur til að greiða fjórtán milljónir króna í málsvarnarkostnað, Jóhannes Baldur 15,5 milljónir og Þorvaldur 10,5 milljónir. Þorvaldur var einn sakborninga viðstaddur dómsuppkvaðninguna í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tvö.
 

Að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í dag hafði  sérstakur saksóknari farið fram á á fimm ára fangelsisdóm yfir Lárusi, þriggja ára dóm yfir Jóhannesi og eins og hálfs árs fangelsi fyrir Þorvald. Lárus var bankastjóri Glitnis, Jóhannes stýrði markaðsviðskiptum bankans og Þorvaldur var bankastjóri Sögu Capitals.

Lárus, Jóhannes og Þorvaldur voru ákærðir vegna lána sem Stím fékk til að kaupa hlutafé í Glitni og FL Group. Alls námu hlutabréfakaup Stíms í Glitni og FL Group tæpum 25 milljörðum króna. Hlutabréfakaupin voru að stórum hluta fjármögnuð með láni frá Glitni og hlutabréfin sjálf voru eina veðið. Þeir neituðu allir sök. Lárus sætti ákæru í tveimur liðum ákærunnar en þeir Jóhnnes og Þorvaldur í þeim þriðja.

Þrátt fyrir ítarlegar skýrslutökur við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur virðist enn á huldu hverjir raunverulega stjórnaði eignarhaldsfélaginu Stími, eins og segir í frétt RÚV um málið og kemur þar fram að vitnaleiðslur í Stím-málinu hafi litlu ljósi varpað á þetta atriði og skráðir stjórnendur félagsins hafi ekki virst vera raunverulegir stjórnendur þess.