„Ég er ekki hetja,“ sagði Lars Lagerbäck á blaðamannafundi eftir sögulegan knatspyrnuleik íslenska karlalandsliðsins á Laugardalsvelli í gærkvöld. Hann segist þó finna vel fyrir velvildinni í sinn garð.
Vart þarf að taka fram að íslenska liðið er komið í lokakeppni EM í Frakklandi á næsta ári og er landsliðsþjálfarinn hógværi fyrir margt löngu kominn í guðatölu hjá áköfustu stuðningsmönnum liðsins og hefur erlendum fjölmiðlum hefur verið tíðrætt um ummæli þess efnis að sjálfsagt gæti hann fengið stuðning þjóðarinnar til að gerast forseti Íslands, kjósi hann að bjóða sig fram í embættið.
\"Það hafa allir staðið sig svo vel. Ekki bara við þjálfararnir heldur líka félögin, yngri landsliðin og svo margir aðrir,\" segir Lars í samantekt á visir.is um þýðingu leiksins í gærkvöld: \"Það hefur verið skrifað um hetjur en þetta er fyrst og fremst afrakstur mikillar vinnu,“ segir sá sænski þar: \"Margir halda að þetta séu töfrar en þetta er niðurstaða mikillar vinnu og þeirrar staðreyndar að Ísland á frábæra knattspyrnumenn. Ég er ekki hetja. En við stóðum okkur vel, að ég tel.“
\"Þetta var erfiður leikur,“ segir Lars um leikinn sjálfan sem þótti á köflum tilþrifalítill, enda passíft leikinn af Íslands hálfu sem ef til vill var hluti af leikplaninu, hafandi í huga hvað Ísland var nálægt því að komast til HM í Brasilíu á sínum tíma sem klúðraðist í síðasta leik undanriðla gegn króötum: \"Mörg lið eiga erfitt með að taka síðasta skrefið en það tókst í kvöld og ég er sérstaklega ánægður með það. Þetta hefur verið algjörlega frábært allt saman en á morgun kemur nýr dagur. Ég veit í raun ekki hvað ég get sagt meira,“ segir þjálfarinn.
Heimir Hallgrímsson talaði um stolt og þakklæti, rétt eins og Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari: \"Ég finn fyrir stolti af því að vera hluti af þessum hópi og vinna með Lars. Við erum heppnir að fá að vinna með þessum kalli,“ segir hann í samntektinni á visir.is.
„Ég er líka stoltur af strákunum. Þeir hafa unnið svo mörg afrek að það er ekki hægt að telja þau öll upp. En það sem stendur upp úr er stuðningurinn og frammistaða áhorfenda sem hefur farið vaxandi með hverjum leiknum.“