Lars Christensen, danskur hagfræðingur og fv. yfirmaður greiningardeildar Danske Bank, sem gerðist mikill óvinur ríkisstjórnar Geirs Haarde fyrir hrun, en hlaut uppreisn æru hjá íslensku þjóðinni eftir hrunið sem hann hafði spáð fyrir um með frægri skýrslu, hefur skrifað og birt pistil þar sem hagfræðingurinn segir að atburðarás síðustu daga sé líkust því að Íslandi sé stjórnað af fíflum.
Í pistlinum á visir.is skrifar Lars: \"Aftur og aftur hafa nánast súrrealískar yfirlýsingar frá leiðandi stjórnmálamönnum hneykslað Íslendinga og umheiminn og skilið þá tilfinningu eftir að Íslandi sé stjórnað af óhæfum fíflum. Að þessu leyti hefur þetta verið býsna líkt þeim hræðilegu vikum 2008 þegar allt íslenska bankakerfið hrundi.\"
Þó er einn munur á, að mati Lars. \"Að þessu sinni er þetta ekki fyrst og fremst saga um hagfræði og markaði, heldur um djúpstæða pólitíska kreppu sem sýnir djúpstæð, alvarleg vandamál í íslenskum stjórnmálastofnunum og -menningu.\"
Hann spáir óverulegum áhrifum til langs tíma á íslenska hagkerfið vegna gerninganna undanfarið en telur þó augljóst að pólitíska kreppan hafi til skamms tíma litið neikvæð áhrif á íslenska hagkerfið. Efnahagsáhrif eftirspurnar markaða kunni tímabundin að vera nokkur en meira máli skipti að sjórnaróvissa vísi til almenns trausts til lagalegs og stofnanalegs umhverfis í hagkerfinu. \"Ef það er mikil óvissa um þessa innviði getur það varanlega dregið úr fjárfestingum og þar af leiðandi framleiðniaukningu í hagkerfinu.\"
\"Hins vegar er meginspurningin ekki um hvað gerist í íslensku efnahagslífi á næstu 2-3 ársfjórðungum heldur hvort þessi stjórnmálakreppa setji af stað meiriháttar breytingar á hinu pólitíska landslagi á Íslandi sem gætu hugsanlega breytt efnahagslegu og pólitísku valdakerfi landsins. Persónulega tel ég þetta mikilvægustu spurninguna þegar litið er til næsta áratugarins eða svo.\"