Lára hanna komin í stjórn rúv

Kosið hefur verið í nýja stjórn RÚV á Alþingi. Píratar fá aftur mann í stjórnina og mun Lára Hanna Einarsdóttir samfélagsrýnir taka sæti í stjórn Rúv fyrir Pírata. Pétur Gunnarsson verður varamaður.

Á vef Pírata segir að málefni stjórnar RÚV hafi verið með eindæmum furðuleg allt þetta kjörtímabil. \"Við upphaf kjörtímabils var stjórnarmönnum fjölgað úr 7 í 9 og var það gert til að auka þverpólitíska breidd í stjórninni. Eins og frægt varð, stóð til að svíkja Pírata um fulltrúa í stjórninni en öllum til mikillar furðu sveik einhver þingmaður lit í leynilegri kosningu og fulltrúar Pírata; Pétur Gunnarsson, rithöfundur (aðalmaður) og Lára Hanna Einarsdóttir, samfélagsrýnir (varamaður), fengu kosningu.\"

Einnig segir á vef pírata að næstu árin hafi meirihlutinn séð til þess að enginn sviki lit. Pétur Gunnarsson vék þá úr stjórn RÚV. 

Þá er rifjað upp að Píratar tóku harða afstöðu gegn frumvarpi mennta- og menningarmálaráðherra um val á fulltrúum í stjórn RUV \"sem fallið var til þess að auka flokkspólitísk afskipti af RÚV\".

Í þeim tilgangi að sporna við flokkspólitískri yfirtöku ríkisfjölmiðilsins, ákváðu Píratar að tilnefna fulltrúa sem eru algerlega ótengdir stjórnmálaflokkum. Enn fremur lögðu Píratar áherslu á að finna fulltrúa sem veitt geta hinni pólitísku stjórn öflugt aðhald og hafa góðan skilning á mikilvægi frjálsra fjölmiðla, upplýstrar umræðu og réttindum frétta- og blaðamanna. Þá vildu Píratar einnig tilnefna fulltrúa i anda áðurgildandi reglna sem gerðu ráð fyrir aðkomu bandalags íslenskra listamanna að vali á fulltrúa í stjórn RÚV en markmið þess var að tryggja að fulltrúi með þekkingu á menningarmálum yrði valinn í stjórn\".