Lára Hanna Einarsdóttir, samfélagsrýnir og þýðandi, baráttukona sem árum saman hefur haldið uppi öflugri gagnrýni á ýmis þjóðfélagsmál, segist hanga í voninni um að hægt sé að siðvæða samfélagið. Hún segir að það komi henni sjálfri á óvart hve mörgum Íslendingum komi enn á óvart að hér sé mikil spilling.
Lára Hanna gefur ríkisstjórinni ekki góða einkunn. Endalaust sé verið að skera niður sameiginlega sjóði. Sameiginlegar skattalækkanir kosti ríkið 10 milljarða króna. Það sé eins og allir vilji lækka skatta en á sama tíma vilji allir gott menntakerfi, gott heilbrigðiskerfi og góðar samgöngur. „Ef við borgum ekki skatta þá er ekki neitt samfélag,“ sagði Lára Hanna í viðtalinu við Kvikuna á Hringbraut í gærkvöld.
Lára Hanna segir að réttlætiskenndin keyri öll hennar ólaunuðu störf áfram.
Kvikan verður endursýnd síðar á Hringbraut auk þess sem alla þætti Hringbrautar má nálgast á hringbraut.is.