Einhverri lengstu kuldatíð í manna minnum virðist ætla að ljúka núna um helgina með löngu tímabærri komu sunnanvinda sem eiga sér öllu hlýrri uppruna en norðanbálið sem hefur lamið á landinu svo mánuðum skiptir.
Loftkuldinn fer sumsé dvínandi og ættu breyttar veðuraðstæður loksins að hleypa gróðrinum af stað á næstu dögum, en hann er víða mánuði eða jafnvel hálfum öðrum mánuði á eftir þeim meðalárum sem landsmenn eiga að þekkja það sem af er þessari öld. Suðvestanáttir virðast vera nokkuð varanlegar í kortunum næstu daga og alveg fram í þjóðhátíðarvikuna, en það mun merkja þokkaleg hlýindi um mest allt land, einna síst þó á Vestfjörðum.
Nýliðinn maímánuður var sá kaldasti í 33 ár með 4,6 stiga meðalhita. Lægsti hitinn í þeim mánuði mældist -18 gráður á Brúarjökli 10. maí, en hæsti hiti mánaðarins var í Skaftafelli tólf dögum seinna, 15,7 gráður.