Langflestir vilja þvingunaraðgerðir

Langflestir þeirra sem tóku afstöðu í óformlegri skoðanakönnun Hringbrautar um hvort Ísland eigi að vera á lista lýðræðisríkja gegn mannréttindabrotum Rússa í Úkraínu vilja að Ísland taki þátt í aðgerðunum.

Spurt var: Á Ísland að styðja þvingunaraðgerðir gagnvart Rússlandi? Hartnær þrjúhundruð manns tóku þátt í könnunni og svörðu 85% þeirra spurningunni játandi en 15% neitandi.

Mikil umræða hefur farið fram í samfélaginu síðustu vikur hvort viðskiptahagsmunir þjóðarinnar vegi þyngra en þau grundvallarsjónarmið um fullveldi og mannréttindi sem þátttaka á þvingunarlistanum grundvallaðist á.

Á meðal manna sem vildu taka viðskiptahagsmuni fram yfir grundvallarsjónarmiðin voru þingmenn Sjálfstæðisflokksins á borð við Ásmund Friðriksson, bæjarstjórinn Elliði Vignisson í Eyjum og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, en talið er að uppsjávarmarkaður Íslendinga í Rússlandi færi þjóðinni nálega 30 milljarða í útflutningstekjur á ári, en það samsvarar 4,5% af árstekjum þjóðarinnar af útflutniingi.