Langflestir vilja gifta samkynhneigða

Aðeins örfáir prestar í Þjóðkirkjunni svara því ekki játandi að þeir myndu gifta samkynhneigða í könnun sem Fréttablaðið hefur gert.  Tveir neita þó en vilja ekki koma fram undir nafni.

Lesa má um könnunina hér.  Hundrað og átta prestar svöruðu játandi, tveir sögðu nei, ellefu vildu ekki taka þátt og einn var óákveðinn. Ekki náðist í þrjátíu og einn prest.

Fram kemur að séra Geir Waage vilji ekki svara spurningunni og segi hana einfaldlega ekki á dagskrá Þjóðkirkjunnar. „Á sínum tíma var þessari spurning svarað á Prestastefnu og síðan þá hefur ekkert breyst,“ segir hann. „Ég færist undan því að tjá mig um þetta yfirhöfuð, það er ekki tímabært. Þá verður að ræða þetta á allt öðrum forsendum og ekki í því samhengi sem fréttamiðlarnir setja málið fram. Prestur á ekki skyldur við aðra en sóknarbörn sín,“ hefur Fréttablaðið eftir Geir.

Einn prestur taldi umfjöllun Fréttablaðsins aðför að Þjóðkirkjunni. Séra Flóki Kristinsson vildi ekki taka þátt í könnuninni og sagðist einfaldlega búinn að fá nóg af málinu. Þá vildu tveir prestar sem svöruðu spurningunni játandi mótmæla umfjöllunum fjölmiðla og sögðu hana alla í neikvæðu ljósi.