Langflestir vilja dag áfram

Í skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag kemur fram að langflestir þeirra sem svöruðu vilja að Dagur B. Eggertsson verði borgarstjóri áfram. Þegar skoðuð eru svör þeirra sem tóku afstöðu þá nefna 45% Dag þegar spurt er um hvern þeir vilji sem næsta borgarstjóra í Reykjavík.

Einungis 30% nefna Eyþór Arnalds og 4% nefna Líf Magneudóttur eða Vigdísi Hauksdóttur. Dagur er þannig með 50% meiri stuðning í borgarstjóraembættið en næsti maður.

 

Einnig var spurt um afstöðu til Dags borgarstjóra. 29% segjast vera mjög ánægð eða frekar ánægð með störf hans. 28% segjast vera hvorki ánægð né óánægð. 15% segjast vera frekar óánægð og 23% eru mjög óánægð.

 

Skoðanakönnun Fréttablaðsins getur tæpast talist marktæk í ljósi þess að einungis náðist í 800 manns af þeim 1.316 sem reynt var að hringja í. Af þeim sem þó svöruðu sögðust 42% vera óákveðin og 16% neita að svara, samtals 58%. Það eru því einungis 336 sem svöruðu erindi Fréttablaðsins sem er afar veikt. Blaðið velur þó að slá upp niðurstöðu þessarar könnunar á forsíðu með 5 dálka frétt.