Langflestir vilja aðkomu alþingis

Ef marka má þá viðhorfskönnun sem staðið hefur yfir á hringbraut.is síðasta sólarhringinn vilja 4 af hverjum 5 þátttakendum að Alþingi taki ESB-umsóknina til efnislegrar umfjöllunar. Fimmtungur svarenda er því andvígur. Ákaft hefur verið blásið að kolunum í þessu pólitíska átakamáli síðustu daga og verður ekki annað séð en óvinafagnaður sé brostinn á milli stjórnar og stjórnarandstöðu og saka þar hvorir aðra um fullkomin óheilindi, ýmist aðför að þingræði, eða oftúlkun á aðstæðum.


Eftir stendur sú lagalega óvissa hvað bænaskjal Gunnars Braga Sveinssonar til forkólfa Evrópusambandsins þýðir í raun og sann fyrir stöðu umsóknarinnar heima fyrir og gagnvart ESB. Það er ekki síst af þeim sökum sem stjórnarandstaðan krefst þess að Alþingi fjalli um málið efnislega, en innan stjórnarflokkanna eru margir þeirrar skoðunar að málið sé útrætt og komið út af borði Alþingis; ráðherra hafi verið í fullum rétti til að taka það af dagskrá í krafti vilja meirihluta Alþingis.


Um 500 manns mótmæltu því sem kallað var gerræði í stað lýðræðis á Austurvelli síðdegis í gær þar sem lögregla hafði komið fyrir varnargirðingu hringinn í kringum þinghúsið. Búast má við frekari mótmælum næstu daga.   


 


á Alþingi að taka ESB-umsóknina til efnislegrar umfjöllunar