Langflestir endurnýja costco kortið

Af þeim 67 prósent Íslendinga sem eiga eða hafa átt meðlimakort í Costco ætla 85 prósent að endurnýja þau eða langflestir.

Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu sem lét Gallup kanna málið fyrir sig.

Þar kemur fram að flestir korthafanna eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Tæp 70 prósent Reykvíkinga kort og 75 prósent íbúa nágrannasveitarfélaganna. Þá hafa tæplega 60 prósent á landsbyggðinni átt meðlimakort í versluninni.

Könnunin var gerð dagana 23. maí til 1. júní. Á þeim tíma hföðu tæplega 37 prósent þegar endurnýjan Costco kortið sitt. Þá sést í könnuninni að um 5 prosent þeirra sem aldrei hafa átt kort ætla að fá sér meðlimakort á næstu sex mánuðum.

Ráðgjafafyrirtækið Zenter gaf árið 2016 út skýrslu um væntanleg áhrif Costco á íslenska markað. Í skýrslunni kom meðal annars fram að árleg endurnýjun á aðildarkortum Costco er að jafnaði 80-85%. 

Nánar hér á vefsíðu Viðskiptablaðsins.