Mikill meirihluti leigjenda á höfuðborgarsvæðinu segist eiga erfitt með að ná endum saman um hver mánaðamót að því er fram kemur í könnun sem gerð var í hóði þeirra.
Spurt var hvort viðkomandi ætti auðvelt með að ná endum saman. Ríflega helmingur, eða 54%, svaraði spurningunni neitandi og 15% sögðu sjaldnast geta það. Einungis 35 svarendur af 345 sögðust eiga auðvelt með að ná endum saman.
Að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag, sem birtir úttekt á leigumarkaðnum, vöruðu alls 500 leigjendur netkönnuninni um leiguverð, ráðstöfunartekjur, fjölskyldustærð, húsaleigubætur og fjárhagsstöðu.Svör 345 leigjenda voru tekin gild og samkvæmt þeim fara að meðaltali 45% af ráðstöfunartekjum allra heimilismanna í leigu. Ef tekið er tillit til húsaleigubóta fara að meðaltali 38% af ráðstöfunartekjum heimilismanna í leigu.
Haukur Hilmarsson, ráðgjafi í fjármálahegðun, gerði könnunina á síðunni skuldlaus.is. Þar sem könnunin er opin eru tölur ekki sannreyndar. Hann segir þó að á heildina litið gefi könnunin ákveðna mynd og rími við reynslu hans í starfi: \"Ég hef mælt með því við fólk sem ég veiti ráðgjöf að halda húsnæðiskostnaði undir 35% af ráðstöfunartekjum. Svo fann ég að það voru óraunhæfar kröfur og ákvað að gera þessa könnun. Niðurstöður hennar eru góð vísbending um raunveruleikann að mínu mati,“ segir Haukur í Fréttablaðinu í dag, en hann hefur í starfi sínu orðið vitni að því að fólk borgi yfir helming af tekjum sínum í húsnæðiskostnað.