Landsvirkjun og hátæknifyrirtækið Advania Data Centers hafa undirritað rafmagnssamning um afhendingu á 30 MW til gagnaversins á Fitjum í Reykjanesbæ.
Samkvæmt frétt frá orkufyrirtækinu hefur verið unnið að mikilli stækkun gagnaversins og er ráðgert að umsvif Advania Data Centers þrefaldist. Starfsmenn gagnaveranna verða um 50 talsins og áætluð velta á árinu er um sex milljarðar króna. Samningurinn gerir Advania Data Centers kleift að mæta sívaxandi eftirspurn eftir ofurtölvuafli og sérfræðiþjónustu í blockchain-tækni.
Endurnýjanleg orka og íslenskt veðurfar eiga þátt í að skapa hagstæðar aðstæður í gagnaverinu á Fitjum. Meðal þess sem laðar erlenda viðskiptavini til Advania Data Centers er að gagnaverið nýtir kalda loftið til að kæla tækjabúnað sem hitnar gríðarlega við notkun. Loftkælingin kemur í veg fyrir að eyða þurfi mikilli orku í að kæla búnaðinn og því er hagkvæmara að knýja hann á Íslandi en víða annars staðar í heiminum.
Orkan sem samningurinn nær til verður afhent úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar, sem rekur 14 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur. Þá stendur yfir stækkun Búrfellsvirkjunar sem áætlað er að gangsetja í sumar.
\"Samstarfið við Advania Data Centers hefur gengið vel,\" segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar - og bætir við : \"Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með góðum árangri fyrirtækisins. Í leiðinni hefur orðið til ný og framsækin atvinnugrein á Íslandi, sem greiðir samkeppnishæft verð fyrir orkuna. Á Íslandi eru kjöraðstæður fyrir rekstur gagnavera og með sölu á rafmagni úr endurnýjanlegum orkugjöfum til þeirra getur Landsvirkjun rennt fleiri stoðum undir sinn eigin rekstur og um leið stutt við frekari vöxt upplýsingatækniiðnaðarins á Íslandi.“
\"Við höfum á undanförnum árum fjárfest verulega í þekkingu og tæknilegri getu sem hefur markað fyrirtækinu sterka stöðu í harðri alþjóðlegri samkeppni,\" segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri ADC: \"Viðskiptavinir okkar sjá ávinninginn af orkusparnaðinum sem kemur til með náttúrulegri loftkælingu á tölvubúnaði í gagnaverinu. Gott samstarf við Landsvirkjun er ein af forsendum þess að Advania Data Centers vaxi og dafni til framtíðar. Það er því ánægjulegt að nýr samningur sé í höfn og við getum svarað kalli eftir aukinni þjónustu,“ segir forstjórinn enn fremur.