\"Við verðum að koma umræðunni yfir í það að náttúruvernd og nýting orku fari saman. Við erum öll náttúruverndarsinnar hér,\" sagði Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar á ársfundi Landsvirkjunar sem nú stendur yfir.
Þar gerði hann m.a. að umræðuefni þau átök sem hafa orðið milli umhverfisverndar og virkjanastefnu, það er framleiðslu raforku. Hann ræddi sérstaklega árekstra ferðaþjónustu það er ímyndar Íslands sem óspjallaðs svæðs og umdeildrar virkjanastefnu. Engin ástæða væri til að stilla ferðaþjónustu og orkunýtingu upp sem andstæðum pólum. Mikilvægt væri að ná sátt um orkuvinnslu.
Hörður sagðist meðvitaður um hve mikar eignir og auðlindir Landsvirkjun væri falið að höndla með. Reksturinn gengi betur en marga gruni, sterk fjármunamyndun væri að eiga sér stað, skuldir væru að lækka og mjög styttist í að hægt væri að auka arðgreiðslur umtalsvert.
Sjálfstæðismenn hafa talað fyrir sölu á hlutum Landsvirkjunar.