Verkfall flugvallarstarfsmanna í Þýskalandi hafði þau áhrif að fresta þurfti landssöfnun Blátt Áfram sem fara átti fram um helgina.
Söfnunarátak Blátt Áfram er samtökunum mjög mikilvægt og hefur verið lífæð samtakanna, án þess mun starfsemin raskast verulega. \"Því hefur verið ákveðið að færa söfnunina yfir á dagana 26. til 29 maí n.k. Við vonumst til að allir þeir sem hafa skráð sig til leiks sjái sér fært að vera með okkur ofangreinda daga,\" segir í tilkynningu.
Hringbraut sýnir aukaþátt af Ég bara spyr miðvikudagskvöldið 25. maí vegna landssöfnunarinnar. Þar verður rætt við 19 ára stúlku sem var misnotuð þegar hún var 9 ára gömul.
Landssöfnun blátt áfram í maí
Fleiri fréttir
Nýjast