Landsréttur ólöglega skipaður samkvæmt mde

Skipun Sig­ríðar Á. Ander­sen á dómurum við Lands­rétt braut gegn 6. grein mannréttindasátt­mála Evrópu og ís­lenska ríkið er bóta­skylt í máli sem Guð­mundur Andri Ást­ráðs­son höfðaði gegn ríkinu og fór með fyrir Mann­réttinda­dóm­stól Evrópu. MDE komst að þessari niðurstöðu í morgun og er ríkið bóta­skylt um 15 þúsund evrur, því sem nemur rúm­lega tveimur milljónum króna. RÚV.is og Fréttablaðið eru meðal þeirra sem greina frá.

Guð­mundur Andri hafði verið dæmdur í 17 mánaða fangelsi í Landsrétti fyrir ýmis brot. Honum þótti Arnfríður Einarsdóttir, sem Sig­ríður skipaði sem dómara við Lands­rétt, vera vanhæf þar sem hún hafi ekki verið á meðal fimm­tán hæfustu um­sækj­enda á lista hæfnis­nefndar. Guðmundur Andri hafi því ekki hlotið rétt­láta máls­með­ferð, en 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu fjallar um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Guðmundar Andra, krafðist þess að Arnfríður yrði dæmd vanhæf vegna skipunar hennar við Landsrétt. Þetta rökstuddi hann meðal annars með vísan til nýlegs dóms Evrópudómstólsins þar sem skipun dómara í starfsmannarétt dómstólsins var talin ólögmæt og gæti hún því leitt til þess að dómar hans yrðu ómerktir. Þá var einnig vísað til dóms EFTA-dómstólsins þar sem talið var að annmarki væri á skipun norsks dómara.

Þá vísaði Vilhjálmur einnig til dóma Hæstaréttar í málum Ástráðs Haraldssonar og Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, tveggja af fjórum dómurum sem voru á meðal þeirra sem voru metnir hæfastir að mati hæfnisnefndar en voru ekki á lista Sigríðar við skipan dómara við Landsrétt.

Vilhjálmur taldi að vegna skipan Sigríðar hefði Guðmundur Andri ekki hlotið réttláta og sjálfstæða málsmeðferð fyrir óvilhöllum dómstóli sem væri skipaður af lögum. Mannréttindadómstóllinn tók undir þessi málsrök og dæmdi Guðmundi Andra í vil. 

Braut stjórnsýslulög

Ástráður og Jóhannes Rúnar leituðu réttar síns og komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Sigríður hafi brotið stjórnsýslulög með því að skipa þá ekki og voru þeim hvorum dæmdar 700 þúsund krónur í miskabætur.

Jón Höskuldsson og Eiríkur Jónsson, hinir tveir dómararnir sem voru á lista hæfnisnefndar en voru ekki heldur skipaðir dómarar við Landsrétt, leituðu einnig réttar síns eftir þessa niðurstöðu Hæstaréttar og var íslenska ríkið dæmt til að greiða þeim skaða- og miskabætur.