Landsréttardómaramál fær flýtimeðferð

Kæra vegna hæfis fjögurra dómara við Landsrétt fær flýtimeðferð hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segir stöðu dómsmálaráðherra ekkert hafa breyst við dóm héraðsdóms í gær, þar sem ríkið var dæmt til að greiða bætur þeim umsækjendum sem metnir voru hæfir, en ráðherra skipaði ekki í Landsrétt. 
 
Sem kunnugt er ákvað Sigríður Andersen dómsmálaráðherra að skipa ekki fjóra umsækjendur úr hópi þeirra fimmtán sem hæfisnefnd taldi hæfustu umsækjendur um dómarastöður við Landsrétt, og valdi aðra fjóra í þeirra stað. Málið var kært til Mannréttindadómstóls Evrópu á grundvelli þess að skipun þeirra fjögurra sem ráðherra valdi væri ólögleg. Dómstóllinn kallaði eftir athugasemdum íslenska ríkisins.