Fullt var út að dyrum á ráðstefnu samtakanna Spítalinn okkar um framtíð Landspítalans á Hótel Loftleiðum í dag, en af fundarmætingunni má ráða að mikill hugur er í velunnurum spítalans.
Á fundinum var farið yfir byggingaráform nýs spítala og hvar menn eru staddir í kringum teikniborðið, en langur tími er liðinn frá því fyrst var byrjað að huga að því að reisa hátæknisjúkrahús á lóð Landspítalans við Miklubraut.
Ráðstefnan var haldin undir fyrirsögninni \"Nýr LS í augsýn\" en forvígismönnum samtakanna sýnist sem svo að nú sé komið að ögurstundu í þessu málum, en mikill vilji virðist vera á meðal þjóðarinnar um að hefja byhggingu spítalsns nú þegar, svo sem lesa má úr könnunum, en einnig vakti athygli á dögunum þegar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra tókust höndum saman um verkefnið ásamt Páli Matthíassyni, forstjóra spítalans.