Landspítalinn þarf aukafjárveitingu

Páll Matthíasson forstóri Landspítalans kallar eftir aukafjárveitingu svo takast megi að vinna upp, fara yfir og forgangsraða öllum þeim fjölda mála sem setið hefur á hakanum á meðan á verkfalli heilbrigðisstétta stóð.

Frum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar um lög á verk­fallsaðgerðir Bandalags háskólamanna og Fé­lags ís­lenskra hjúkr­un­ar­fræðinga var samþykkt á Alþingi á áttunda tímanum á laugardagskvöld að lok­inni þriðju umræðu. Lög­in taka þegar gildi sam­kvæmt frum­varp­inu og verk­fallsaðgerðum fé­lag­anna, sem staðið hafa yfir und­an­farn­ar vik­ur, er þar með lokið.

Verkfall BHM stóð frá 7. apríl, eða í rífa tvo mánuði. Verkfall FÍH stóð frá 27. maí, eða í nálega þrjár vikur.

Páll Matthíasson segir spítalans bíða risaverkefni við að vinda ofan af þeim vanda sem blasi við eftir svo langt verkfall geislafræðinga, lífeindafræðinga, náttúrufræðinga og nú síðast hjúkrunarfræðinga á þjóðarspítalanum. Öllum megi ljóst vera að það endurreisnarstarf verði ekki unnið innan núverandi fjárheimilda spítalans, enda sé verkefnið risavaxið. Ekki bæti heldur úr skák að sumarleyfi séu að hefjast á þessum mannmarga vinnustað. Hann segir að enn sé ekki sé búið að meta kostnað við að vinna á vand­an­um, en það verði skoðað á næst­unni.

Á annað þúsund hjúkr­un­ar­fræðing­ar og annað starfs­fólk spít­al­ans sem verið hefur í verkfalli hóf störf í nótt sam­kvæmt vaktatöflu, en á næstu dögum kemur í ljós hversu margir þeirra standa við þá hótun sína frá síðustu dögum að segja upp störfum til að mótmæla því að menntun skuli ekki metin til launa af ríkisvaldinu.

Verkfallslögin gilda til 1. júlí. Hafi ekki samist fyrir þann tíma kemur það í hlut gerðardóms að ákveða launakjör umræddra stétta.