Farsóttarnefnd Landspítalans hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar orða Svanhildar Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, í Silfrinu á RÚV á sunnudag.
Svanhildur lauk þættinum á að varpa fram spurningu um muninn á svínaflensufaraldrinum 2009 og faraldrinum nú. Þá hafi miklu fleiri legið inni á Landspítalanum en nú en engar sóttvarnaraðgerðir í gangi á landamærum eða annarsstaðar.
„Mig langar bara að vita hvað hefur breyst á þessum tólf árum sem gerir það að verkum að á þessum tíma var enginn að tala um það að fara í neinar sérstakar aðgerðir til þess að vernda spítalann vegna þess að hann gæti ekki þolað þetta álag,“ sagði hún. „En núna í hvert sinn sem að smitum fjölgar örlítið, við erum ekki að tala um innlögnum er að fjölga stórkostlega, þá fer allt í baklás og farið að benda á að hér verði komið á einhverju neyðarstigi.“
Í tilkynningu farsóttarnefndar segir að óljóst sé hvers vegna verið sé að bera saman þessa faraldra þar sem þeir séu ólíkir:
- „COVID-19 hefur staðið í 20 mánuði en faraldur svínaflensunnar var viðfangsefni á Landspítala í 75 daga.
- Svínaflensa er inflúensa sem er vel þekktur sjúkdómur en COVID-19 er nýr og áður óþekktur sjúkdómur
- Bólusetning við svínaflensu hófst strax með góðum árangri en bólusetningar við COVID-19 hófust tæpu ári eftir að faraldurinn hófst og árangurinn er ekki jafn góður af þeim bólusetningum
- Við svínaflensu var unnt að nota veirulyfið Tamiflu sem dró úr veikindum og kom jafnvel í veg fyrir þau. Slík lyf eru ekki fáanleg við COVID-19
- Í svínaflensufaraldrinum lögðust um 130 sjúklingar inn á spítalann og þurftu 21 gjörgæslumeðferð. Það sem af er COVID-19 faraldri hafa 492 sjúklingar lagst inn á Landspítala og 87 þeirra þurft gjörgæslumeðferð, sumir oftar en einu sinni.
- Áhrif svínaflensunnar á samfélagið voru mun minna en COVID-19, þar sem ekki þurfti að beita rakningu, einangrun og sóttkví. Þessi staðreynd hefur umtalsverð áhrif á starfsemi Landspítala nú.
- Árið 2009 voru ríflega 900 rúm á Landspítala (285/100.000 íbúa)og 18 gjörgæslurými. Þau eru nú rúm 640 (175/100.000 íbúa)og gjörgæslurýmin 14.
- Ekki er rétt munað að ekki hafi þurft að fara í sérstakar ráðstafanir á Landspítala vegna svínaflensunnar. Starfsemi spítalans tók þeim breytingum þá sem nauðsynlegt var í farsótt eins og nú en þær stóðu aðeins yfir í fáeinar vikur, sem kann að skýra að einhverjir muni ekki þá alvarlegu stöðu sem uppi var á þeim tíma.“