Fréttastofa RÚV, sem greindi frá gjöfinni í gærkvöld, fjallaði um skort á jáeindaskanna í nóvember á síðasta ári. Jakob Jóhannsson, yfirlæknir við geislameðferð krabbameina á Landspítalanum, sagði þá að slíkt tæki hefði aldrei verið til hér á landi og að rýma þyrfti húsnæði eða reisa nýtt til að hægt væri að koma honum upp hér.
Tækið er stórt, því fylgir annað tæki sem býr til geislavirk efni og svo þarf sérþjálfað starfsfólk. „„Það er líka spurning um húsnæðið, annað hvort þá tengt þá nýja spítalanum eða hreinlega byggja við það sem við erum með núna til að rýma fyrir þetta tæki,“ sagði Jakob við fréttastofu en ekki er einfalt að koma tækinu upp.
Tækið nýtist sérstaklega vel fyrir ýmsar tegundir af lungnakrabbameinum, eitlakrabbamein, leghálskrabbamein og krabbamein í koki. En ef tækið væri til hér væri líka hægt að nota það til að finna upprunastað krabbameins ef fólk greinist með meinvarp.