Landspítali hefur verið settur á gult viðbúnaðarstig vegna rútuslyss í dag á Suðurlandsvegi, við Hofgarða, skammt norðan við Fagurhólsmýri.
Samkvæmt upplýsingum frá landsspítalanum eru 5 alvarlega slasaðir af 33 sem voru í rútunni. Eru þeir nú á leið til Landspítala, en ekki er vitað með vissu hvenær eða hvernig viðkomandi koma til Landspítala, með sjúkrabifreið, sjúkraflugi eða þyrlu. Eftir því sem næst verður komist er reiknað með að hinir 28 séu með minniháttar meiðsl
Vegna mikils álags sem viðbúnaðarstig hefur í för með sér biður Landspítali fólk með minniháttar áverka eða veikindi um að leita frekar til heilsugæslu eða Læknavaktar frekar en bráðadeildar í Fossvogi ef kostur er. Þetta atvik kemur ofan í þunga stöðu og þann mikla flæðisvanda, sem Landspítali glímir við í augnablikinu.