Spáð er djúpri lægð sem kemur yfir landið á morgun og verður viðvarandi fram á fimmtudag. Með lægðinni sem stefnir á Reykjanes á morgun, eykst veðuráraun á raforkukerfið. Eldingahætta verður með meginskilum lægðarinnar í fyrramálið, þá einkum suðvestan- og sunnanlands.
Með vestanáttinni í kjölfarið er reiknað með umtalsverðu álagi um sunnan og vestanvert landið af völdum vinds, ísingar og seltu sem verður viðvarandi fram á fimmtudag. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á öllu suðurlandi og spáir hún allt að 23 metrum á sekúndu á höfuðborgarsvæðinu. Þá er spáð éljagangi og skafrenningi og á köflum mjög lítið skyggni.
Starfsfólk Landsnets mun fylgjast náið með veðurspám næstu daga og undirbúa viðbrögð ef veðurspár ganga eftir. Landsnet hefur nú þegar kortlagt hvaða landsvæði eru útsett fyrir seltu er unnið að undirbúningi hreinsunar í góðu samstarfi við slökkvilið á svæðunum sem um ræðir.