Landsmönnum fjölgar

Í hagtíðindum um mannfjöldaþróun árið 2016 sem Hagstofa Íslands gefur út segir að hinn 1. janúar 2017 voru úbúar á Íslandi 338.349 manns.

Er þetta 1,8% fjölgun á milli ára eða um 5.820 manns.

Árið 2016 fæddust 4.034 börn en 2.309 manns létust.

Aðfluttir voru 4.069 manns.

Fjölmennasta sveitarfélagið er Reykjavík með 123.246 íbúa.

Erlendir ríkisborgarar voru 30.275 og eru Pólverjar þar langfjölmennastir eða 13.795 manns.

Árið 2016 voru 46.516 manns fæddir erlendis - fleiri en nokkru sinni frá landnámi Íslands.

rtá

Nánar www.hagstofa.is