Lítill áhugi virðist vera á meðal landsmanna í þá veru að leggja niður embætti sérstaks saksóknara í bráð. Í óformlegri skoðanakönnun sem birtist á forsíðunni á hringbraut.is í síðustu viku - og hundruð manna tóku þátt í - kemur í ljós að yfir 80 prósent þátttakenda vilja að sérstakur saksóknari haldi starfi sínu áfram, en innan við fimmtungur er því andvígur. Spurt var hvort leggja ætti niður embættið á þessu ári, en hugmyndir hafa verið þess efnis innan stjórnarflokkanna, bæði í sparnaðarskyni en eins í ljósi þess að embættið hefur þegar rannsakað meginhluta ætlaðra brota, að segja hér komið gott af rannsókn efnahagsbrota í aðdrganda hrunsins. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu sjálfu vantar aðeins að hefja rannsókn á þremur af þeim hundruðum mála sem voru í byrjun á skrá embættisins. Þar á meðal er Giftar-málið sem varðar tugmilljarða gjaldþrot þegar fjármunir einstaklinga og sveitarfélaga í eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga sálugu gufuðu upp, en stjórnarformaður þess var Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagafjarðar og einn helsti áhrifamaðurinn í Framsóknarflokknum.
Landsmenn vilja sérstakan áfram
Fleiri fréttir
Nýjast