Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, segir að orð sín um að Íslendingar ættu að íhuga að draga úr hvalveiðum sínum hafi verið rangtúlkuð. Ísland megi aldrei gefa eftir rétt sinn til að veiða hvali og raunar ættu Íslendingar að veiða hrefnu sem aldrei fyrr.
Gunnar Bragi segir þetta í samtali við RÚV, en haft var eftir honum nýlega í Skessuhorni að Íslendingar ættu að íhuga að draga úr hvalveiðum vegna gagnrýni á þær á alþjóðavettvangi. Gunnar Bragi segir að með ummælum sýnum hafi hann einungis viljað velta því upp hvort það þjónaði hagsmunum Íslands að draga úr veiðunum.
\"Ég kveð ekkert upp úr um það hvort að við eigum að gera það eða ekki. Ég reyndar ítreka í viðtalinu að við megum aldrei gefa eftir rétt okkar til að veiða hvali. Ég vil líka taka það fram að hrefnan er undanskilin við þetta. Ég held að við eigum að veiða hrefnuna sem aldrei fyrr.\"