Landsmenn samtaka í klósettferðum þegar Ísland er á sviði í Eurovision

Ís­lendingar og aðrir lands­menn voru sam­taka í klósett­ferðum á meðan Euro­vision stóð í gær. Sam­kvæmt tölum Veitna má sjá það greini­lega að notkun á köldu vatni minnkaði um­tals­vert á meðan flutningur ís­lenska liðsins var í loftinu.

Í til­kynningu frá Veitum segir að stórir við­burðir sem þessi gefi á­huga­verðar upp­lýsingar um sam­eigin­legt hegðunar­mynstur borgar­búa og væntan­lega lands­manna allra.

Þá segir að leiða megi líkum að því að skrifa megi sveiflur í notkun vatns, á meðan á söngva­keppninni stendur, á að fólk sé að létta á sér og sturta niður.

Svo virðist sem nokkur fjöldi hafi séð á­stæðu til að skreppa á klóið áður en mynd­bandið með fram­lagi Ís­lands, 10 Years, var sýnt og hið sama var uppi á teningnum þegar laginu lauk.

Á milli þessara tveggja toppa minnkar notkun á köldu vatni um­tals­vert enda sátu margir límdir við skjáinn til að fylgjast með flutningnum.

Þá kemur fram í til­kynningunni að vatns­notkun Reyk­víkinga sé yfir­leitt tölu­vert minni þegar loka­keppni Euro­vision stendur yfir en á hefð­bundnu laugar­dags­kvöldi. Notkunin minnkar svo stöðugt þegar líður á kvöldið, og er með allra minnsta móti þegar ís­lenska lagið er flutt og svo aftur þegar úr­slitin verða ljós.

Þegar út­sendingu keppninnar lýkur eykst vatns­notkun og verður fljótt í sam­ræmi við það sem gerist á venju­legum laugar­dags­kvöldum.

Tölurnar að baki myndinni, hér að ofan og neðan, eru rennslis­mælingar úr kerfi vatns­veitu Veitna í Reykja­vík sem fær allt sitt vatn úr vatns­bólunum á vatns­verndar­svæðinu í Heið­mörk.

Mynd/Veitur