Landsmenn komnir yfir 330 þúsund

Landsmenn eru komni yfir 330 þúsunda markið og gott betur ef marka má nýjustu tölur Hagstofu Íslands sem sér um manntal Íslendinga og hefur gert lengur en elstu menn muna.

Í lok annars ársfjórðungs 2015 bjuggu 330.610 manns á Íslandi, 166.170 karlar og 164.440 konur, sem merkir að hér á landi eru 270 fleiri konur en karlar. Landsmönnum fjölgaði um 870 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 25.090 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 212.120 manns.
 
Á öðrum ársfjórðungi 2015 fæddust 1.050 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 350 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 120 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 470 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 170 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 480 íslenskir ríkisborgarar af 680 alls. Af þeim 570 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (120) og Svíþjóð (100), samtals 360 manns af 550. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 340 til landsins af alls 1.050 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 60 erlendir ríkisborgarar til landsins.