Vaxandi norðan- og norðaustanátt verður í nótt og á morgun og kólnar verulega með hvössum vindi víða. Vindur verður 13-20 m/s annað kvöld, hvassast A-til. Snjókoma fyrir norðan, jafnvel slydda við sjóinn, en skúrir eða slydduél S-lands í fyrstu. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, svalast inn til landsins NA-til.
Þessi kaldranalega spá var sett fram klukkan fimm í morgun hjá Veðurstofunni.
Í athugasemd veðurfræðings tekur ekki betra við, nú þegar landsmenn hafa vanist mildu vorveðri síðustu daga.
\"Athygli er vakin á að spáð er snjókomu á morgun og framan af mánudegi. Það mun snjóa á Vestfjarðakjálkann, um allt Norðurland og austur á Austfirði. Dæmigert snjómagn sem fellur á umræddu tímabili gæti verið 10-20 cm ef snjórinn væri jafnfallinn, en það verður hann ekki því norðanáttin í þessu hreti verður allhvöss og því mun draga í skafla. Líklegt er að hálka myndist á vegum og að færð spillist, sérílagi á fjallvegum. Búast má við að snjóflóðahætta geti skapast til fjalla,\" segir í athugasemd veðurfræðings.
Það er því betra að fara varlega.