Landsliðið í mörgum liðum

Óhætt er að segja að landsliðið komi við sögu í öllum dagskrárliðum Þjóðbrautar sem verður á dagskrá Hringbrautar milli 10 og 12 á sunnudagsmorguninn.

Enda er það vel skiljanlegt þar sem leikur Íslands og Frakklands verður háður á sunnudagskvöldið. Meðal gesta þáttarins verður Guðjón Þórðarson sem hefur sem þjálfari leitt lið sitt til leiks gegn Frökkum á þjóðarleikvangi Frakka, rétt einsog gert verður á sunnudaginn.

Ferill Guðjóns, sem landsliðsþjálfara, verður rifjaður upp og talað um einstaka leiki og ekki síst leik kvöldsins.