Landsfundur í skugga lítils fylgis

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins sem fram fer um helgina er haldinn í skugga minnsta fylgir sem flokkurinn hefur mælst með í aðdraganda slíks fundar, en flokkurinn mælist nú me 21,7% fylgi samkvæmt nýrri könnun MMR.

Ef horft er sex ár aftur í tímann sést að fylgi flokksins hefur verið mjög misjafnt í þann mund sem blásið hefur verið til þessa helsta fundar flokksins eins og fram kemur í frétt Fréttablaðsins um fylgissveiflurnar í morgun. Fyrir fundinn 2009 var flokkurinn með 29,3% fylgi, tveimur árum síðar fór hann með himinskautum í 40,5%, en var kominn niður í 28,5% fylgi fyrir landsfundinn 2013.

Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðingur segir við Fréttablaðið að nokkrar skýringar kunni að vera á þessum sveiflum; flokknum gangi alla jafna betur þegar hann sé í stjórnarandstöðu og eins hafi honum á síðustu misserum ekki tekist jafn vel og áður að höfða til borgaralega afla og þá verði heldur ekki framhjá því litið að ráðherrar flokksins, einkum Hanna Birna Kristjánsdóttir, en einnig Illugi Gunnarsson, hafi skaðað ímynd flokksins.

Gunnar bendir hins vegar á þá meginreglu að land flokka rísi yfirleitt nokkuð um og eftir landsfundi þeirra.