Landsframleiðsla: ísland á topp 10

Samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum fyrir árið 2014 var magn vergrar landsframleiðslu á íbúa á Íslandi 21% yfir meðaltali Evrópusambandsríkja árið 2014.

Í samanburði við 37 Evrópuríki, þar af 28 ríki Evrópusambandsins auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu, var Ísland tíunda í röðinni yfir verga landsframleiðslu á íbúa sama ár.

Efst á listanum trónir Lúxemborg með nokkuð afgerandi forskot á önnur Evrópuríki, en þar á eftir koma í þessari röð: Noregur, Sviss, Írland, Holland, Austurríki, Svíþjóð, Danmörk, Þýskaland og Ísland.

Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar sem var í morgun, en samanburðurinn er unninn í samstarfi við hagstófu Evrópusambandsins, Eurostat, og OECD.