Fjármálaráðherra hefur á Alþingi svarað fyrirspurn um virðiskaukaskattskyldu veltu hótela og gistiheimila. Umræða er en þá um þau áform ríkisstjórnarinnar að láta ferðaþjónstuna greiða virðisaukaskatt til fulls á við annan atvinnurekstur. Staðhæft er að þessi áform munu leggjast þyngst á landsbyggðina.
Ráðherrann segir mikilvægt að hafa í huga að ekki er hægt að aðgreina hvar umrædd velta á sér stað í raun og veru. Einungis hvar virðisaukaskattsnúmerið er skráð. Í flestum tilvikum er það þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru. Þótt fyrirtækið geti rekið starfsemi á mörgum stöðum. Fyrir vikið er velta í einhverjum tilvikum ofmetin fyrir svæði þar sem höfuðstöðvar eru staðsettar og vanmetin á svæðum þar sem dótturfyrirtæki eru starfrækt.
Fjárhæðir sem um ræðir eru svo dæmi sé tekið árið 2016 rúmir 34 miljarðar króna á höfuðborgarsvæðinu og um 33 milljarðar á landsbyggðinni. Árið 2015 voru þessar fjárhæðir um 25 milljarðar á höfuðborgarsvæðinu en um 24 milljarðar á landsbyggðinni. Árið 2014 voru þessar fjárhæðir röskir 19 milljarðar króna á höfuðborgarasvæðinu og 17 milljarðar á landsbyggðinni. Árið 2013 voru þessar fjárhæðir 16 milljarðar króna á höfuðborgarsvæðinu og 14 milljarðar króna á landsbyggðini. Þarna er ekki talin með áætluð velta þeirra aðila sem ekki hafa skilað skattframtölum eða VSK-skýrslum. Þessar tölur tala sínu máli.
rtá
Nánar www.rsk.is www.althingi.is