Landsbankinn vill matsmenn vegna borgunar

Mál Lands­bank­ans gegn Borgun hf., fyrr­ver­andi for­stjóra Borg­unar Hauki Odds­syni, BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. var tekið fyrir 13. apríl síð­ast­lið­inn. Við það tæki­færi lagði Lands­bank­inn fram beiðni um að dóm­kvaddir yrðu mats­menn til að leggja mat á „til­tekin atriði varð­andi árs­reikn­ing Borg­unar hf.“ Mál­flutn­ingur um mats­beiðn­ina fer fram í lok næstu viku, eða 31. ágúst. Þetta kemur fram í nýjasta árs­hluta­reikn­ingi Lands­bank­ans.

Kjarninn.is fjallar um málið.

Bank­inn, sem er í eigu rík­is­ins, höfð­aði málið í jan­úar 2017 til við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu vegna sölu­hagn­aðar sem hann telur sig hafa orðið af þegar hann seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í Borgun árið 2014. Í til­kynn­ingu sem Lands­bank­inn sendi frá sér þegar málið var höfðað sagði að hann hefði ekki fengið „upp­­lýs­ingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutn­um, þ. á m. mög­u­­lega hlut­­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­réttar í val­rétt­­ar­­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.“

Lands­bank­inn hefur ekki viljað afhenda Kjarn­anum stefn­una í mál­inu né þær grein­ar­gerðir sem lagðar hafa verið fram. Í árs­hluta­reikn­ingi bank­ans er þó stað­fest að búið sé að skila grein­ar­gerðum í mál­inu