Landsbankinn: stjórnarliðar deila

Hugmynd Frosta Sigurjónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um að gera Landsbankann að samfélagsbanka sem hafi hagsmuni íslenskra neytenda á dagskrá, er bæði snjöll og tímabær. Þetta skrifar Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, á Facebook-síðu sína.

Hann tekur þar undir hugmynd Frosta um að Landsbankinn verði ekki einkavæddur heldur gerður að samfélagsbanka, en það gengur þvert á fyrirætlanir Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem hefur marglýst því yfir að selja beri drjúgan hlut ríkisins í Landsbankanum, hann hafi verið endurreistur af ríkinu fyrir lánsfé á sínum tíma og nú sé lag að ríkið fái þá fjármuni til baka svo grynnka megi enn frekar á skulum ríkissjóðs.

Ríkið á rösklega 80% hlut í bankanum og er ljóst að tugir milljarða fást fyrir hann, líklega þó sem nemur milljarði á hverja prósentu sem ríkið á í bankanum. Heimild hefur verið til að selja allt að 30% hlut ríkisins í Landsbankanum um all langt skeið. Bjarni hefur lýst því yfir að salan muni fara fram í hægum skrefum og hefjist væntanlega þegar á næsta ári.

Sú afstaða Bjarna gengur hins vegar í berhögg við stefnu samstarfsflokks hans í ríkisstjórn, Framsóknarflokksins og þar er talið víst að forsætisráðherra geti verið fjármálaráðherra óþægur ljár í þúfu, svo og dágóður hluti þingflokks framsóknarmanna. Þar hefur verið haldið á lofti hugmynd Frosta um að bankinn verði gerður að samfélagsbanka í þágu hagsmuna allra landsmanna.

Össur tekur í færslu sinni undir þær hugmyndir: \"Allt stefnir í að hinir stóru bankarnir tveir verði seldir erlendum aðilum. Það á bersýnilega að haga uppgjörinu við slitabúin þannig að íslenskir aðilar, lífeyrissjóðir eða aðrir, eigi ekki nokkra möguleika á að kaupa þá. Þeir munu fyrst og fremst hugsa um að ná sem mestum hagnaði héðan á sem stystum tíma. Nú þegar er vaxtamunur íslensku bankanna einn sá hæsti sem hægt er að finna. Saman hefur bönkunum tekist að drepa alla möguleika á að endurreisa sparisjóðina. Við þessar aðstæður er því hugmynd Frosta um að gera Landsbankann að samfélagsbanka sem hefur hagsmuni íslenskra neytenda á dagskrá því bæði snjöll og tímabær,\" skrifar Össur.