Landsbankinn sagður rúinn trausti

Landsbankinn er rúinn trausti eftir ógagnsæja sölu á hlut í Borgun fyrir árslok 2014. Þetta sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar í beinni útsendingu í sjónvarpsfréttum Rúv í gærkvöld.

Fyrr um daginn hafði Árni Páll farið fram á að sala bankans á Borgun yrði könnuð vegna frétta um að nú stefni í milljarða hagnað félagsins vegna yfirtöku Visa International á evrópuhluta Visa. Árni Páll krafðist á Alþingi í dag „alvöru rannsóknar“ og kallar Fjármálaeftirlitið til, enda sé komið á daginn að viðskiptin hafi verið „kaup aldarinnar“ í íslensku viðskiptalífi.

„Þetta er ekki síst mikilvægt nú þegar að fyrir liggur að ríkið þarf að selja ríkisbanka og þeir flokkar sem nú sitja í ríkisstjórn hafa skelfilega sögu af því að koma slíkum eignum í hendur aðila á markaði,“ sagði Árni Páll á þingi í dag.

Bankastjóri Landsbankans segir að bankinn hafi ekki getað séð fyrir þær breytingar sem urðu á kortamarkaði eftir söluna.

Í kaupendahópnum þegar hluturinn í Borgun var seldur var frændi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, Einar Sveinsson.