Landsbankinn mátti segja upp konu þó ekki væri við hana eina að sakast

Landsbankanum var heimilt að segja upp konu, sem gegndi stöðu deildarstjóra, eftir atvik sem kom upp í samkvæmi starfsmanna þótt ekki væri við konuna eina að sakast. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem sýknaði bankann af kröfu konunnar upp á rúmar 9,6 milljónir króna.

Ekki er tekið fram í dómnum hvað gerðist í umræddu samkvæmi starfsmannanna en þar er sagt að í október árið 2016 hafi einn starfsmaður kvartað undan einelti af hálfu konunnar. Konunni var í kjölfarið veitt áminning. Sumarið 2017 kom svo upp atvikið í samkvæminu og var konunni sagt upp störfum í kjölfarið.

Konan þykir hafa staðið sig vel í starfi þrátt fyrir þetta. Í dómnum segir að einkafyrirtæki eins og Landsbankinn hafi töluvert svigrúm til að segja fólki upp og að í þessu tilfelli hafi uppsögnin verið gerð í samræmi við lög og kjarasamninga. Konan fékk greiddan sex mánaða uppsagnarfrest eftir uppsögnina.

Kröfu sína byggði konan þá meðal annars á því að uppsögnin hafi ekki verið nægilega rökstudd, þar hafi verið sagt að hún „ylli mikilli ólgu meðal starfsmanna með framkomu sinni“. Landsréttur telur þó að bankinn hafi mátt segja henni upp, þrátt fyrir að af gögnum málsins megi ekki sjá að ósætti starfsmannanna hafi verið konunni einni að kenna. Bankinn hafi mátt segja henni upp til að leysa þann vanda sem kominn var upp meðal starfsmannanna.