Ásmundur Friðriksson gagnrýndi yfirstjórn Landsbankans harðlega í þingræðu sem hann flutti í dag undir liðnum Störf þingsins.
Hann sagði að yfirmenn bankans hefðu ekki axlað ábyrgð. Fyrir vikið væri bankinn kominn i ruslflokk.
Eina sögu sagði Ásmundur sem virðist hafa snert hann mikið og jafnvel meira en hið svokallaða Borgunarmál. Hann ræddi að útibú Landsbankans í Reykjanesbæ hefði nýverið sagt upp starfsmanni sem hefði starfað í áratugi við bankann. Hann væri 75% öryrki, giftur, ætti tvö börn og hefði verið hvers manns hugljúfi við þjónustuborðið. Svo hefði hann lent í bílslysi í fyrra, hefði verið frá vegna slyssins, væri nýkominn aftur til starfa en hefði þá verið sagt upp. Samfélagsleg ábyrgð bankans væri engin. Höggvið væri í „okkar veikasta bróður“.
Fram kom í ræðu Ásmundar að hann væri búinn að senda Landsbankanum bréf og spyrja hvort ekki væri von á breytingum í efstu lögum bankans. Hann hefði haldið að óttastjórn væri liðin tíð en það væri spurning. Stórfelldur vandi væri í starfsanda innan bankans, starfsfólki liði illa og bregðast yrði við.