Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að fresta hönnunarsamkeppni um fyrirhugaða nýbyggingu bankans við Austurhöfn. Samkeppnin átti að hefjast síðar í ágúst.
Frá þessu er greint á vefsíðu bankans í dag, en þar kemur fram að þetta sé gert til að fara yfir þau sjónarmið sem fram hafi komið á síðustu vikum.
Landsbankinn tilkynnti í fyrri hluta júlí að nýjar 14.500 fermetra höfuðstöðvar bankans rísi við hlið Hörpu í Austurhöfn í Reykjavík. Byggingaráformin mættu harðri gagnrýni, meðal annars frá stjórnarþingmönnum og forsætisráðherra. Hann sagði það undarlegt að banki í almanneigu ætli að fara gegn vilja eigandans í málinu. Landsbankinn er að nær öllu leyti í eigu ríkisins.
Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir í samtali við Kjarnann að hugmyndasamkeppninni sé frestað til þess að hægt sé að fara yfir þau sjónarmið sem hafa verið sett fram á síðustu vikum. Spurður hvort sterk viðbrögð hafi komið á óvart svarar hann því bæði játandi og neitandi. „Við vissum að ákveðinn hópur fólks yrði á móti og myndi finna áformunum öllu til foráttu. En gagnrýnin var meiri og víðtækari en menn reiknuðum með. Við töldum liggja fyrir góð rök með framkvæmdunum, meðal annars fjárhagsleg rök sem fengu litla sem enga athygli. Við vissum að þetta yrði umdeilt,“ seigr hann.