Landsréttarmálinu ekki lokið

Gestir Þjóðbrautar í kvöld eru þau Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokki og Birgitta Jónsdóttir Pírötum sem sitja í stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis - og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður.

Skipan í nýjan Landsrétt hefur verið mjög umdeild og málinu ekki lokið þar sem ríkinu hefur verið stefnt vegna breytinga sem dómsmálaráðherra gerði á hæfnislista sérstakrar dómnefndar. Meirihluti Alþingis samþykkti listann fyrir viku síðan.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson undirritaði í morgun skipunarbréf dómaranna fimmtán.

 

Í Þjóðbraut er einnig rætt við Helgu Jónsdóttur, prófessor og deildarforseta Hjúkrunarfræðideildar HÍ um tillögur um að bjóða upp á styttra hjúkrunarnám en áður, jafnvel tveggja ára nám í stað fjögurra ára.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um milljarða greiðslu ráðuneyta fyrir sérfræðikostnað á liðinum árum er hörð gagnrýni á íslenska stjórnsýslu. Ólafur Þ. Stephensen, formaður Félags atvinnurekenda fer yfir málið en einnig mætir Páll Þór Sigurjónsson, viðskiptamaður í Peking til níu ára. Gríðarlega mörg íslensk fyrirtæki láta framleiða vörur sína í Kína.