Birgir Jakobsson landlæknir segir að grípa verði til tafarlausar aðgerða strax til að öryggi sjúklinga á aðalsjúkrahúsi landsmanna verði ekki stefnt í hættu, en annar dagur verkfalls hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum er nú hafinn.
Af hálfu stjórnvalda eru engin áfrorm uppi um að setja lög á vinnudeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisvaldsins, en ljóst er að svo mikið ber í milli samningsaðila að vart eða engin von er um lausn á deilunni á næstu dögum. Munar þar að sögn 20% á milli hvað launaliðinn varðar að því er heimildir Hringbrautar herma. Hjúkrunarfræðingar vilja að laun þeirra verði metin til menntunar þeirra sem er minnst fimm ára háskólanám, en þeir telja að samningar ríkisins við lækna fyrr á árinu, sem voru ríflegir, gefi tóninn fyrir það sem þeir eiga skilið að fá. Verði ekki komið til móts við þessar kröfur þeirra nú sé hætt við því að flótti bresti á í stétt hjúkrunarfræðinga hér á landi en þeir fá minnst tvöfalt hærri laun fyrir sömu vinnu í nágrannalöndunum.
Verkfall Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur til 1600 hjúkrunarfræðinga, þar af eru 500 á undanþágulista og fyrir vikið mæta 1100 þeirra ekki lengur til vinnu vegna verkfallsins. Það hefur haft þau áhrif að senda hefur þurft fjölda sjúklinga heim af Landspítalanum sem getur nú aðeins sinnt bráðatilfellum, en fyrir voru í verkfalli á spítalanum lífeindafræðingar og geislafræðingar innan Bandalags háskólamanna sem verða bráðum búnir að vera í verkfalli í tvo mánuði með þeim afleiðingum að fólk sem þarf á mikilvægum rannsóknum að halda safnast fyrir á biðlistum.