Landlæknir vill lög á verkföllin

Birgir Jakobsson, landlæknir kallar eftir lagasetningu á verkfall heilbrigðisstétta svo starfsemi Landspítalans raskist ekki. Á vef embættisins segir að engin ástæða sé til að bíða eftir skaðlegum áhrifum verkfallsins.

Birgir er afdráttarlaust þeirrar skoðunar að taka eigi hagsmuni sjúklinga framar hagsmunum launafólks sem hér eigi í hlut. Hann skrifar þetta á vef sinn vegna verkfallanna:

\"Embætti landlæknis fylgist með áhrifum verkfalla á sama hátt og gert var síðastliðinn vetur og vor. Embættið hefur þegar óskað eftir áliti stjórnenda heilbrigðisstofnana á hugsanlegum áhrifum verkfalla Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) og Stéttarfélags í almannaþjónustu (SFR). Svör eru enn að berast.

Að mati stjórnenda Landspítala munu mörg hundruð starfsmenn, sjúkraliðar, ritarar, starfsmenn skiptiborðs, starfsfólk sem vinnur við dauðhreinsun, tölvumál, geðsvið o.s.frv. fara í verkfall.

Verkföll nú bætast ofan á þann uppsafnaða vanda sem er afleiðing fyrri verkfalla og sumarleyfistíma starfsfólks. Ástæða er til að ætla að áhrif verkfalla á heilbrigðiskerfið verði umtalsverð og skaðleg og að heilsu sjúklinga verði sem fyrr stefnt í hættu.

Það er því mat embættisins að það sé engin ástæða til þess að bíða eftir þessum skaðlegu áhrifum, heldur fylgja fordæmi vorsins og binda endi á verkföll SLFÍ og SFR eins fljótt og auðið er.\"